22.06.2011 23:09
Sláttur hafinn
Sláttur hófst í dag hér í Belgsholti og er það frekar seint hér á þessum bæ
Í fyrrasumar var byrjað að slá 6 júní er þetta kuldinn sem veldur þessu
Ágæt grasspretta er og voru heimatúnin kringum bæinn slegin í dag
Það vantar svo vætuna og er allt að skrælna úr þurrki og gras hætt að vaxa þar sem sandur er undir
Það er svo mikið ryk í loftinu og berst mikið hér inn í bæ vonandi fer vegagerðin að rykbinda hér í kringum bæinn eða bara fari að rigna smá til ap laga þetta

21.06.2011 21:41
Vindmyllan
Nú styttist í að vindmyllan verði sett upp
Það kemur maður frá fyritækinu Hanevind í Svíþjóð 4 júlí til að vera viðstaddur þegar myllan rís og verður tengd og byrjar framleiðslu
Ekki er alveg búið að ákveða hvaða dag hú nverður svo formlega vígð en verður trúlega í þeirri viku ef allt gengur upp

14.06.2011 12:07
Kuldi

10 júní snjóaði í fjöll og var skrítið að horfa á svona græn tún tré og akra og snjó í fjöllum og langt niður í hlíðar
Það er bara spurning hvernig korninu reyðir af í þessum kulda
Halli veiktist þriðjudaginn 7 júní og var fluttur á sjúkrahusið á Akranesi og var lagður inn í rannsókn allt fór vel og hann kom heim daginn eftir
Hér á bæ hefur staðið yfir tiltekt á gömlu járnadrasli og er búið að fylla 2 gáma
Æðarvarpið hefur farið hægt á stað vegna kulda og er miklu minni fugl sjáanlegur inn í nesi heldur en s.l ár krían kom seint og er mjög lítið af henni
Pálmi Snær kom í sveitina í gær og ætlar að vera vinnumaður í viku og Sara Björt kom i pössun í gær og verður í nokkra daga
Skrifað af sigrún sól
05.06.2011 12:46
Hitastig í maí nokkur ár í Belgsholti
Hér set ég inn nokkur ár um meðalhita í maí það er búið að vera veðurstöð hér síðan 2003
maí 2011
úrkoman 42,4 mm 1 maí var 17,4 mm
meðalhiti var 6,2°hámarkshiti 15,4
lágmarkshiti - 0,8° 17 maí
hámarksvindur 28,6 metrar
meðalvindur 5,8 metrar sek
ríkjandi NA átt
í maí 2005 meðalhiti 5,1°
í maí 2006 meðalhiti 5,9°
í maí 2007 meðalhiti°6,1°
í maí 2008 meðalhiti 8,2°
hitamælir var bilaður í maí 2009 og 20010

05.06.2011 11:02
maí
Nú er langt síðan ég skrifaði síðast inn og ætla ég að bæta úr því núna
Maímánuður er búinn að vera ansi kaldur og fór hitinn alveg niður að frostmarki um miðjan mánuðinn og núna í vikunni snjóaði i Hafnarfjallið og var slydda hér 1 maí snjóaði mjög mikið og var 7 sm jafnfallin snjór hér en upp í Leirársveit var 17 sm og daginn eftir var komið 15 °hiti
Búið er að sá öllu korni í ca 60-70 ha og hveiti og vorrepju í 1 ha og koma út skít á túnin en vætan lét svoldið bíða eftir sér en nú er allt á góðri leið í sprettu og grasið farið að þjóta upp enginn tilbúinn áburður er borinn á túnin fyrir fyrri slátt bara ´kúamykju og svínaskít
Sláttur verður örugglega aðeins seinna en í fyrrasumar en vonandi fer að hlýna upp úr þessu það var 7°hiti hér kl 10 í morgun og rigning
Olíurepjan sem sáð var í fyrra hluti af því er lifandi og eitt afbrigði goja alveg dautt
Ég keypti mér kvörn til að mala hveitið og kornið og er ég farin að baka úr því brauð og vöfflur og er að prufa mig áfram svo hafa vinir og vandamenn fengið að prufa og kemur það mjög vel út
Við Elín eru að búa okkur til hænsnakofa í gamla turnhúsinu og fáum við okkur íslenskar landnámshænur frá Hlésey eftir nokkrar vikur
Kartöflur voru settar niður á fimmtudaginn 2 júní sem er svoldið seinna en í fyrra en þá var sett niður um miðjan maí í steikjandi sól og hita en núna var slydda og kuldi
Ég sáði fyrir grænmeti í byrjun maí inni og er búin að flytja það í vermireit úti en þær eru smá saman að stækka svo vonandi verður eitthvað úr þeim þega hausta tekur
Af vindmyllunni er það að frétta að dregist hefur að koma henni upp það er verið að bíða eftir manni sem kemur frá Svíþjóð óg kemst hann ekki fyrr en í byrjun júlí og er áætlaður timi að vígja hana 8 júlí
Halli skrifaði undir samrekstrarsamning við Rarik í síðustu viku um að tengjast dreifikerfinu og ætlar Fallorka á Akureyri að kaupa uframorku frá okkur sem ekki verður not fyrir Þetta er fyrsti samningur sem gerður við vindmyllu hér á landi
Á föstudaginn 3 júní útskrifaðist hún Elín tengdadóttir okka sem búfræðingur frá Hvanneyri og er þá komin fyrsti búfræðingurinn í Belgsholt og færðum við henni í gjöf eina litla sæta kvígu kálf sem fékk nafnið Lína í höfuðið á eigandanum
Læt þetta duga í bili
nýjar myndir í albúmi

Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 34
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 39116
Samtals gestir: 14976
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:04:57